fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
433Sport

Vilja gera leikmann Liverpool að þeim dýrasta í sögunni – Slot talað afar vel um hann

Helgi Sigurðsson
Fimmtudaginn 18. júlí 2024 08:15

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sepp van den Berg, varnarmaður Liverpool, er á óskalista hollenska stórliðsins PSV samkvæmt fjölmiðlum þar í landi.

Hinn 22 ára gamli Van den Berg heillaði á láni hjá Mainz í Þýskalandi á síðustu leiktíð og vill PSV nú fá hann til heimalandsins.

Liverpool er talið vilja um 20 milljónir evra fyrir kappann en PSV vill borga nær 15-16 milljónir evra.

Sepp van den Berg. Getty Images

Það er ljóst að það myndi þó gera Van den Berg að dýrasta leikmanni í sögu hollenska félagsins.

Arne Slot, nýr stjóri Liverpool og samlandi Van den Berg, hefur þó talað vel um varnarmanninn og sagt að hann vilji halda honum.

Það verður því spennandi að sjá hvernig þessi mál þróast í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Aðstoðarmaður Ten Hag að kveðja?

Aðstoðarmaður Ten Hag að kveðja?
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Mbappe stoltur og hefur engar áhyggjur af númerinu – ,,Ég sé ekki hvað er á bakhlið treyjunnar“

Mbappe stoltur og hefur engar áhyggjur af númerinu – ,,Ég sé ekki hvað er á bakhlið treyjunnar“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Er til í að skoða það að fá Davíð aftur í Breiðablik

Er til í að skoða það að fá Davíð aftur í Breiðablik
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Modric skrifar undir og tekur við fyrirliðabandinu

Modric skrifar undir og tekur við fyrirliðabandinu