Fyrrum lögmaðurinn og saksóknarinn Gary Zerola var áður einn af eftirsóttustu piparsveinum Bandaríkjanna, að mati miðilsins People. Nú hins vegar mun hann verja næstu 5-10 árunum á bak við lás og slá eftir að gerast sekur um nauðgun.
Lögmaðurinn fyrrverandi hafði í janúar árið 2021 eytt tæpum 150 þúsund krónum í lúxuskvöldstund með konu sem hann var að slá sér upp með og 21 árs gamalli vinkonu hennar. Vinkonan varð mjög ölvuð og Zerola ákvað að hjálpa henni að komast heim. Þegar hann var kominn inn á heimili hennar þá nauðgaði hann henni á meðan hún svaf ölvunarsvefni.
Vinkonan lýsti fyrir dómi hvaða áhrif brotið hefur haft á líf hennar. Hún sagðist hafa reynt hvað hún gæti til að láta þetta ekki brjóta sig. Hún ætlaði ekki að gefa Zerola slíkt vald yfir lífi hennar og framtíð. Hún hafi barist af hörku en engu að síður glímt við martraðir í vöku sem og í svefni.
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Zerola var sakaður um kynferðisbrot. Þvert á móti hafði hann árið 2023 verið sýknaðir af tveimur ákæruliðum þar sem hann var sakaður um nauðgun og eins var hann ákærður í þremur málum á árunum 2006-2007 en ekkert þeirra mála endaði með sakfellingu.