Enski landsliðsmaðurinn Jude Bellingham tapaði sér við Gareth Southgate, þjálfara sinn, snemma í seinni hálfleik í úrslitaleik EM gegn Spánverjum á sunnudag. Mark Odgen, blaðamaður á ESPN, segir frá þessu.
Spánn vann leikinn 2-1 og þarf enska karlalandsliðið að bíða enn lengur eftir næsta titli á stórmóti.
Þegar um hálftími lifði leiks tók Southgate Harry Kane af velli, en framherjinn hafði lítið getað í leiknum eða á mótinu. Odgen segir að skömmu áður hafi Bellingham beint reiði sinni að þjálfaranum.
„Rétt áður en Kane var tekinn út af tapaði Bellingham sér við Southgate og sagði „gerðu eitthvað.“ Kane var svo tekinn út af fyrir Watkins og Englandi gekk mun betur,“ segir Odgen.
Um var að ræða síðasta leik Southgate við stjórnvölinn en hann tilkynnti í morgun að hann væri hættur sem landsliðsþjálfari Englands.