Sverrir Ingi Ingason gekk í gær óvænt í raðir Panathinaikos og fór þar sem aftur til Grikklands, þar sem hann spilaði áður með PAOK. Það er óhætt að segja að stuðningsmenn síðarnefnda liðsins hafi ekki tekið fréttum gærdagsins vel.
Landsliðsmiðvörðurinn yfirgaf PAOK fyrir Midtjylland í Danmörku í fyrra og varð meistari með liðinu í vor. Nú er hann hins vegar mættur aftur í gríska boltann en nú í annað lið.
Undir tilkynningu Sverris er aragrúi af ummælum, sumum mjög ógeðfelldum, frá stuðningsmönnum PAOK sem eru reiðir yfir því að kappinn fari í annað stórlið í Grikklandi.
„Peningar tala, helvítis svikari,“ skrifar einn og margir taka í svipaðan streng.
„Þú varst í hjörtum okkar, barst fyrirliðabandið og svo gerirðu þetta. Við bíðum þín á Toumba,“ skrifaði annar en það er heimavöllur PAOK.
Margir minntust einmitt á Toumba og viðtökurnar sem Sverrir fengi þar þegar hann mætir með Panathinaikos.
„Við munum slátra þér þegar þú kemur á Toumba,“ skrifaði einn.
„Ég sé eftir því að hafa fagnað með þér. Þú eyðir okkur úr minningunni á þennan hátt.“
Einnig mátti finna mun grófari ummæli sem ekki er við hæfi að þýða hér.
View this post on Instagram