Markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson er genginn í raðir Kortrijk í Belgíu frá norska liðinu Viking.
Patrik, sem er fastamaður í íslenska landsliðshópnum og hefur í heildina spilað fjóra A-landsleiki, skrifar undir fjögurra ára samning við Kortrijk. Eins og flestir vita er Freyr Alexandersson þjálfari liðsins.
Hinn 23 ára gamli Patrik hefur komið víða við þrátt fyrir ungan aldur. Erlendis hefur hann, auk Viking, leikið með Brentford, Silkeborg, Viborg og Southend.
Kortrijk bjargaði sér á ótrúlegan hátt frá falli úr belgísku úrvalsdeildinni í vor, en útlitið var svart þegar Freyr tók við liðinu í janúar.
Hello, Patrik! 👋#KerelsStrijdenDoor 🔴⚪️ pic.twitter.com/NVnR9vxpnm
— KV Kortrijk (@kvkofficieel) July 16, 2024