Davíð Ingvarsson er farinn frá danska B-deildarliðinu Kolding eftir um hálfs árs dvöl þar.
Bakvörðurinn spilaði aðeins ellefu leiki fyrir Kolding á tíma sínum þar, en liðið hafnaði í þriðja sæti B-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Davíð kom frá Breiðabliki í vetur og er nú frjáls ferða sinna á ný.