Jude Bellingham var skiljanlega reiður og svekktur eftir tap Englands í úrslitaleik EM gegn Spánverjum í gær.
Það var Nico Williams sem kom Spánverjum yfir snemma í seinni hálfleik í gær. Cole Palmer jafnaði metin á 73. mínútu með frábæru skoti fyrir utan teig.
Flestir héldu að leikurinn væri á leið í framlengingu en Mikel Oyarzabal skoraði sigurmarki Spánar á 86. mínútu. Lokatölur 2-1.
Bellingham gekk sár og svekktur af velli í gær og lét það bitna á kæliboxi við varamannaskýlin, eins og sjá má hér að neðan. Myndbönd af þessu hafa vakið athygli.
JUDE BELLINGHAM KICKS COOLER after England fall to late defeat in Euro 2024 final.
Real Madrid star gave everything he had throughout the tournament with his frustration at missing out on more glory this season on display. 💔🏴 pic.twitter.com/XLeXl3kp0q
— Men in Blazers (@MenInBlazers) July 14, 2024