Spánn vann úrslitaleikinn 2-1 og kom sigurmarkið seint í leiknum. Englendingar voru í sárum yfir að þurfa að bíða enn lengur eftir titli á stórmóti og létu margir það í ljós fyrir utan völlinn, eins og fram kom í beinni útsendingu RÚV í gær. Gunnar Birgisson og Freyr Alexandersson voru fyrir hönd stöðvarinnar í Berlín.
„Þetta hefur verið tilfinningaþrungið hér eftir leik því Englendingarnir voru svo sannarlega að vonast til þess að nú kæmi titillinn. Ég og Freyr höfum staðið hér í nokkrar mínútur og við erum búnir að heyra ókvæðisorð falla í okkar garð. Ég veit ekki hvort þeir haldi að við séum Spánverjar, við erum kannski ekki spænskir í útliti. Það hefur verið mjög erfitt fyrir Englendingana að kyngja þessu tapi,“ sagði Gunnar fyrir utan leikvanginn í gærkvöldi.
Það var Nico Williams sem kom Spánverjum yfir snemma í seinni hálfleik í gær. Cole Palmer jafnaði metin á 73. mínútu með frábæru skoti fyrir utan teig. Flestir héldu að leikurinn væri á leið í framlengingu en Mikel Oyarzabal skoraði sigurmarki Spánar á 86. mínútu.