Vestri 0 – 2 KA
0-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson(’45, víti)
0-2 Hallgrímur Mar Steingrímsson(’75)
Hallgrímur Mar Steingrímsson sá um að klára Vestra í dag en leikið var á Ísafirði í Bestu deild karla.
Hallgrímur kom sá og sigraði á Ísafirði en hann gerði bæði mörk KA sem van flottan útisigur.
KA hefur verið á flottu róli undanfarið og er búið að vinna þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum og situr í áttunda sæti.
Vestri er í miklu veseni og er í næst neðsta sæti með 11 stig eftir fyrstu 14 leiki sína.