fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
433Sport

Íslensku stelpurnar á EM eftir stórkostlegan sigur

Victor Pálsson
Föstudaginn 12. júlí 2024 18:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland 3 – 0 Þýskaland
1-0 Ingibjörg Sigurðardóttir(’13)
2-0 Alexandra Jóhannsdóttir(’52)
3-0 Sveindís Jane Jónsdóttir(’83)

Íslenska kvennalandsliðið er á leið á EM í fimmta sinn í röð eftir stórkostlegan sigur á Laugardalsvelli í kvöld.

Stórlið Þýskalands mætti í heimsókn að þessu sinni en ljóst var að sigur myndi tryggja okkur sæti á lokamótinu.

Þetta var í fyrsta sinn sem Ísland leggur Þjóðverja að velli á heimavelli en stemningin var mikil fyrir leikinn og mætingin flott.

Íslensku stelpurnar skoruðu þrjú mörk gegn engu frá gestunum sem fara heim ansi svekktar með ekkert í pokanum.

Lokamótið hefst á næsta ári og fer fram í Sviss og erum við til alls líkleg miðað við frammistöðuna í kvöld.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Athæfi Bellingham beint eftir leik í gær náðist á myndband – Sjón er sögu ríkari

Athæfi Bellingham beint eftir leik í gær náðist á myndband – Sjón er sögu ríkari
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Hreyttu ókvæðisorðum í starfsmenn RÚV í Berlín

Hreyttu ókvæðisorðum í starfsmenn RÚV í Berlín
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Manchester City undirbýr síðasta samningstilboðið

Manchester City undirbýr síðasta samningstilboðið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu sigurmark Spánverja gegn Englandi í kvöld

Sjáðu sigurmark Spánverja gegn Englandi í kvöld