Jadon Sancho og Erik ten Hag áttu jákvæðan fund í dag og er leikmaðurinn snúinn aftur til æfinga hjá Manchester United. Fabrizio Romano greinir frá.
Þetta verða að teljast ansi stórar fréttir fyrir stuðningsmenn United en talið var að Sancho ætti enga framtíð hjá United vegna ósættis við stjórann. Hófst það snemma á síðustu leiktíð eftir leik við Arsenal og fór það svo að Sancho var lánaður aftur til Dortmund í janúar.
Á fundi þeirra í dag ákváðu þeir hins vegar að sættast og er allt að baki.
Sancho er því klár í undirbúningstímabilið með United og staðráðinn í að sanna sig á ný.