fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Fréttir

Halldóra segir streitu og áföll í æsku breyta genatjáningu – Auknar líkur á andfélagslegri hegðun

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 12. júlí 2024 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Rannsóknir hafa sýnt að streita og áföll í æsku breyta tjáningu gena sem hafa með streitu- og tilfinningastjórnun að gera, sem kann að gera einstaklinga útsettari fyrir neikvæðum félagslegum aðstæðum og auka líkurnar á andfélagslegri hegðun.

Umhverfisáhrif á borð við uppeldi og menntun geta haft áhrif á tjáningu gena sem hafa með siðferðisleg viðhorf og ákvarðanatöku að gera. Börn sem alast upp í öruggu og styðjandi umhverfi geta þróað með sér sterkari siðferðiskennd, sem dregur úr líkum á glæpsamlegri hegðun,“

segir Halldóra Lillý Jóhannsdóttir lögfræðingur í grein sinni Gen og glæpir á Vísi.

Uppeldi og ofbeldi eru andstæður – gen og glæpir eru háð aðstæðum

Halldóra rekur að í íslensku samfélagi hefur verið aukin áhersla á að draga úr glæpastarfsemi meðal ungmenna. Ein leið til að ná þeim markmiðum er að styrkja siðferðiskennd og samkennd ungmenna með aðferðum sem byggja á kenningu um aðstæðumótað atferli (Situational Action Theory, SAT) og skilningi á erfðauppeldi (epigenetics). Í grein sinni fjallar Halldóra um hvernig þessar kenningar geta í sameiningu útskýrt hegðun og hvernig hægt er að nýta þessa þekkingu til að bæta forvarnir og inngrip í íslensku samfélagi.

„Samkvæmt kenningunni um aðstæðumótað atferli (SAT) er glæpsamleg hegðun afleiðing af samspili einstaklingsbundinna eiginleika og félagslegra aðstæðna. Kenningin leggur áherslu á að einstaklingar hafa mismunandi siðferðiskennd og tilfinningastjórn, sem mótar viðhorf þeirra til lögbrota. Þannig geta aðstæður ýmist skapað svigrúm fyrir glæpi eða verið til þess fallnar að hindra glæpi, og þurfa aðgerðir því að taka mið af bæði persónulegum og félagslegum þáttum.

Með erfðauppeldi (epigenetics) er vísað til þess hvernig umhverfisáhrif geta haft áhrif á tjáningu gena án þess að breyta sjálfri DNA röðinni. Þessar breytingar á genatjáningu eru samt sem áður arfgengar þótt þær valdi ekki breytingum á erfðaefninu sjálfu. Tengsl á milli erfðauppeldis og SAT geta útskýrt hvernig umhverfisþættir og félagslegar aðstæður geta mótað hegðun einstaklinga í gegnum líffræðilega ferla.“

Halldóra Lillý Jóhannsdóttir

Námsefni

Halldóra segir mikilvægt að innleiða námsefni sem leggur áherslu á siðferðislega ákvörðunartöku, siðferðisgildi og afleiðingar frávikshegðunar. 

„Það hlýtur að vera grundvöllur fyrir því að efla siðferðisþroska nemenda. Þetta myndi í sér reglulegar kennslustundir í siðfræði, þjálfun í að gera rétt (mögulega með sýndarveruleika) og kenna persónulega ábyrgð og tilfinninga- og streitustjórnun til að hjálpa þeim að stjórna tilfinningum sínum og leysa deilur friðsamlega. Slíkt stuðlar að bættri sjálfstjórn, minni árásargirni og aukinni félagslegri hæfni. Þá væri hægt að gera leiðbeiningarforrit þar sem eldri nemendur, kennarar og aðrir leiðbeina og styðja yngri nemendur, sem hafa þá alltaf jákvæðar fyrirmyndir, persónulegan siðferðislegan stuðning og félagslega tengingu.“

Tómstundastarf þarf einnig að vera áhugavert, þar sem fjölbreytt tómstundastarf stuðlar að teymisvinnu, virðingu og félagslegri tengingu. „Dæmi um að bæta slíkt starf er aukin niðurgreiðsla í íþróttum og að hafa félagsmiðstöðvar inn í skyldunáminu, til að valda smitáhrifum yfir í að börn hagnýti slíkar miðstöðvar í frítíma sínum. Einnig mætti hafa samfélagsþjónustuverkefni inn í skyldunámi. Loks eru foreldrar mikilvægir samstarfsaðilar þegar kemur að því að stuðla að siðferðisþroska, og væri hægt að ætla þeim þátttöku í vinnustofum.“

Halldóra segir að „með öflugri samvinnu fræðimanna, stjórnvalda og samfélagsins alls er hægt að bæta siðferðisþroska einstaklinga og skapa umhverfi sem dregur úr frávikshegðun og stuðlar að jákvæðri þróun.“

Greinina má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Manndrápsmál á Akureyri – Komið til saksóknara

Manndrápsmál á Akureyri – Komið til saksóknara