Það var danska fyrirtækið Norstat sem gerði könnunina fyrir danskt stéttarfélag og atvinnuleysistryggingasjóð.
Jótlandspósturinn segir að 29% aðspurðra hafi sagt að samband hafi verið haft við þá frá vinnustað þeirra á meðan þeir voru í sumarfríi. Forstjóri Business Danmark atvinnuleysistryggingasjóðsins sagði þetta mikið áhyggjuefni. Það skipti miklu máli að fólk fái tækifæri til að kúpla sig alveg frá vinnunni og njóta frísins án þess að vera truflað. Þetta sé lykilatriði fyrir andlegt heilbrigði og almenna vellíðan.
Tæplega annar hver starfsmaður sagðist telja það skyldu sína að svara yfirmanninum eða vinnufélaga ef þeir hafa samband í fríinu. Þeir sögðust einnig leysa verkefni, tengd vinnunni, í sumarfríinu.