Kjartan Magnússon, borgarfulltrú Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir meirihluta borgarstjórnar hafa svæft tillögur flokksins um viðbrögð við auknum fjölda rafhjólaslysa og dragi lappirnar varðandi viðbrögð við vandanum. Bendir Kjartan á að tillagan, sem snýr að betri merkingum á göngu- og hjólreiðastígum borgarinnar, aukinni fræðslu í skólum og aukið umferðaeftirlit lögreglu, hafi verið flutt á borgarstjórnarfundi í september 2022 og henni hafi einróma verið vísað til umverfis- og skipulagsráðs borgarinnar til frekari meðmferðar.
„Þar hefur tillagan þó ekki enn verið tekin fyrir þrátt fyrir að margoft hafi verið minnt á hana. Er þetta eitt margra dæma um slaka stjórnsýslu hjá Reykjavíkurborg. Því miður er það rík tilhneiging hjá meirihluta borgarstjórnar að taka ekki tillögur minnihluta til efnislegrar meðferðar og svæfa þær þannig. Slæmt er þegar það hefur í för með sér að brýnar úrbætur í umferðaröryggismálum komast ekki á dagskrá eins og raunin er í þessu tilviki,“ skrifar Kjartan í aðsendri grein í Morgunblaðið.
Bendir hann á að vandinn fari vaxandi en alls voru skráð 131 rafhlaupahjóla slys á síðasta ári samkvæmt skýrslu Samgöngustofu um umferðarslys á árinu 2023. Talið er að slysin séu mun fleiri.
„Þessi þróun á sinn þátt í því að slysamarkmið umferðaröryggisáætlunar stjórnvalda hafa ekki náðst. Í fyrra nam fjöldi látinna og alvarlegra slasaðra í umferðinni 237 manns, sem er um 60% yfir markmiðum. 28% þeirra sem slösuðust alvarlega í umferðinni á síðasta ári voru á reiðhjóli eða rafhjóli. Þar af var tæpur helmingur á rafhlaupahjóli eða um 13% af þeim sem slösuðust alvarlega. Þó er talið að umferð rafhlaupahjóla sé aðeins um 1% af allri umferð. Einn hjólreiðamaður beið bana og 246 slösuðust, þar af 65 alvarlega,“ skrifar Kjartan.
Hann segir mikil brögð að því að léttum bifhjólum, bæði rafknúnum og bensíndrifnum, sé ekið eftir göngu- og hjólastígum, langt yfir þeim 25 kílómetra hámarkshraða sem gildir þar.
„Meirihluti bifhjólamanna fer að reglum en ljóst er að of margir virða ekki hraðareglur. Mörg dæmi eru um að rafhjólum sé ekið svo hratt nálægt gangandi eða hjólandi vegfarendum að liggi við stórslysi. Þá eru dæmi um að foreldrar banni ungum börnum sínum að fara út á hjólastíga borgarinnar því þeir séu orðnir að hraðbrautum fyrir vélknúin farartæki, þ.e. rafhjól,“ skrifar Kjartan og telur að aðgerða sé þörf.