Nuno Tavares er á leið til Lazio frá Arsenal.
Bakvörðurinn gekk í raðir Arsenal fyrir þremur árum en er alls ekki inni í myndinni hjá stjóra liðsins, Mikel Arteta.
Á síðustu leiktíð var Tavares á láni hjá Nottingham Forest en tímabilið þar áður var hann lánaður til Marseille.
Nú verður Tavares lánaður enn á ný en nú er ljóst að hann hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal. Það fylgir lánssamningnum að Lazio verði að kaupa hann á 7-8 milljónir evra næsta sumar.
Aðeins á eftir að klára að semja við leikmanninn sjálfan.
🚨🔵 Arsenal have accepted Lazio final proposal to sign Nuno Tavares on loan with obligation to buy, fee around €7/8m.
Arsenal will also have sell-on clause.
Negotiations are ongoing with Tavares agents on personal terms. pic.twitter.com/h9HUPi9opG
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 10, 2024