Veiruna, H5N1, er helst að finna í fuglum en hún hefur nú borist í nautgripi á rúmlega 100 kúabúum í 12 ríkjum Bandaríkjanna. Óvirkar agnir úr veirunni hafa fundist í gerilsneyddri mjólk sem var komin í kæla stórmarkaða.
Sky News skýrir frá þessu og segir að fjórir starfsmenn kúabúa hafi smitast af veirunni fram að þessu en sjúkdómseinkennin hafi verið mild og þeir hafa ekki smitað aðra af veirunni.
Ný rannsókn vísindamanna við University of Wisconsin-Madison sýnir að veirusýni, sem voru tekin úr kúm, geta ráðist á móttakara á frumum í öndunarfærum fólks.
Það afbrigði H5N1, sem er í fuglum, getur ekki gert það. Þetta bendir til að veiran hafi stökkbreyst.
Vísindamennirnir gerðu frekari rannsóknir á frettum, sem eru mjög oft notaðar í rannsóknum á flensum, og komust að því að veiran barst ekki auðveldlega á milli þeirra með lofti.
Ed Hutchinson, doktor við Medical Research Council and University of Glasgow Centre for Virus Research, sagði í samtali við Sky News að samt sem áður sé „tilefni til að hafa áhyggjur“.
Hann sagði að í ljós hafi komið að veiran sé byrjuð að ná sumum þeim eiginleikum sem tengjast getu hennar til að dreifast auðveldlega með lofti. Hún virðist ekki vera farin að geta gert þetta enn sem komið er en ef svo fer, þá verði enn erfiðara að halda stjórn á henni og hún verði enn hættulegri fyrir fólk.
Hann sagði að þörf sé á að fylgjast náið með veirunni og reyna að ná tökum á faraldrinum eins fljótt og hægt er.
Nýja rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Nature.