Jack Grealish, leikmaður Manchester City, hefur staðfest það að hans fyrsta barn sé á leiðinni.
Grealish fékk slæmar fréttir fyrr í sumar er honum var tjáð að hann væri ekki í landsliðshópi Englands á EM.
Englendingurinn fékk þó gleðifréttir nú á dögunum en kærasta hans Sasha Attwood á von á barni.
Þetta verður fyrsta barn Grealish sem er 28 ára gamall og hefur leikið í Manchester undanfarin þrjú ár.
Það styttist í að fyrsti leikur City á undirbúningstímabilinu hefjist en hann er gegn Celtic þann 23. júlí.
View this post on Instagram