Það virðist ekkert ætla að verða af því að ítalski knattspyrnustjórinn Stefano Pioli taki við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu. Fyrir nokkrum dögum var talið að hann tæki við og yrði launahæsti stjóri í heimi.
Pioli hefur stýrt fjölda ítalskra liða á ferlinum, þar á meðal Inter og AC Milan, þar sem hann var síðast. Pioli var aðeins til umræðu í hlaðvarpinu Dr. Football í gær og því velt upp hvort hann tæki Albert Guðmundsson með sér á næsta áfangastað, en hann er aðdáandi Íslendingsins.
„Ef hann fer til Al-Ittihad myndi ég halda að hann tæki Albert með sér. Ég myndi telja það mjög líklegt. Hann hefur alla tíð talað um Albert og í hvert skipti sem er viðtal fyrir Genoa leiki hefur hann talað mjög mikið um hann,“ sagði Hjörvar í Dr. Football í gær.
Albert átti stórgott tímabil með Genoa og á dögunum var hann meðal annars orðaður við Sádi-Arabíu. Hann hefur einnig verið orðaður við lið eins og Inter og Tottenham.
„Yrði þetta gott skref fyrir Albert?“ spurði Gunnar Birgisson í kjölfarið áður en Hjörvar tók til máls á ný.
„Ég veit ekki hvort það sé gott skref en ef þú fengir töluna á blaði, ert 27 ára, átt kannski eftir að gera tvo samninga það sem eftir er ævinnar. Ég held þú verðir að hugsa þetta þannig líka,“ sagði hann, en eins og flestir vita eru miklir peningar í boði í Sádí.
Pioli er samningslaus sem stendur en það verður gaman að sjá hvort hann reyni að fá Albert þangað sem hann skrifar undir næst.