Marseille hefur gert formlegt tilboð í Mason Greenwood, sóknarmann Manchester United og færist hann nær franska félaginu. Fabrizio Romano segir frá.
Greenwood var á láni hjá Getafe á Spáni á síðustu leiktíð og gerði vel. Hann á hins vegar ekki framtíð á Old Trafford.
Marseille er með Greenwood efstan á blaði fyrir sumarið hjá sér og eru viðræður milli félaganna farnar af stað.
Ekki er ljóst hvort Marseille myndi formlega kaupa Greenwood í sumar. Hann færi mögulega á láni með kaupskyldu að því loknu.
🚨🔵⚪️ Understand Olympique Marseille have sent formal bid to Manchester United for Mason Greenwood!
Talks underway between the two clubs, Greenwood’s still OM main target with agreement getting closer.
Man United open to loan with obligation to buy, sell-on clause included. pic.twitter.com/rRgNASlwPs
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 8, 2024