Michael Olise er genginn í raðir Bayern Munchen en þetta staðfesti þýska félagið í gær.
Um er að ræða 22 ára gamlan vængmann sem var áður á mála hjá Crystal Palace og stóð sig vel.
Olise gerir samning til ársins 2029 en kaupverðið er talið vera rúmlega 50 milljónir punda.
Olise hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Palace undanfarin tvö ár en mun nú reyna fyrir sér í nýju landi.
Um er að ræða Frakka sem var þó ekki valinn í landsliðshópinn fyrir EM í Þýskalandi.