Víkingur hefur samþykkt tilboð sænska úrvalsdeildarfélagsins IFK Norrköping í Sigdísi Evu Bárðardóttur og mun hún ganga til liðs við félagið á næstu dögum. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Sigdís, sem er fædd árið 2006, hefur verið að eiga frábært tímabil með nýliðum Víkings í Bestu deildinni. Undanfarið hefur hún verið orðuð við Norrköping og nú hafa skiptin þangað verið staðfest.
Sigdís hefur raðað inn mörkum fyrir Víking undanfarin ár og óhætt að fullyrða að liðið muni sakna hennar.
Hér að neðan má sjá kveðjumyndbandið.