Markahrókurinn Vivianna Miedema hefur skrifað undir þriggja ára samning við Manchester City.
Hollenski framherjinn kemur á frjálsri sölu til City. Samningur hennar við Arsenal rann út fyrr í sumar, en hún hafði verið þar í sjö ár.
Hin 27 ára gamla Miedema hefur verið einn besti leikmaður heims undanfarin ár. Hún skoraði 80 mörk fyrir Arsenal í efstu deild.
Manchester City hafnaði í öðru sæti ensku ofurdeildarinnar á síðustu leiktíð, aðeins á eftir Chelsea á markatölu.
— Vivianne Miedema (@VivianneMiedema) July 5, 2024