Það er nánast öruggt að enska úrvalsdeildin muni taka stig af Leicester í upphafi tímabils fyrir að brjóta reglur um fjármögnun.
Þetta tengist 2022/23 tímabilinu þar sem Leicester féll úr deildinni.
Búið er að kveða upp um það að enska úrvalsdeildin má refsa Leicester en félagið hélt því fram að það mæti ekki þar sem það hefði fallið úr deildinni.
Núna er talið öruggt að stig verði tekin af Leicester og það verði allt að tíu stig.
Búist er við að dómur falli í málinu þegar enska deildin verður farin af stað í ágúst.