Miðbæjarlífið í Reykjavík getur boðið upp á óvænta hluti. Það gerðist síðastliðna helgi þegar ungur íslenskur karlmaður tók upp rottu fyrir aftan skemmtistaðinn American Bar við Vallarstræti við Austurvöll.
Myndband af athæfinu hefur fengið nær 80 þúsund áhorf á TikTok.
„Þetta er kreisí. Þú ert eins og Ron Weasley maður,“ segir sá sem tekur myndbandið upp. Ron Weasley, besti vinur Harry Potter í samnefndum bóka- og kvikmyndaflokki, átti einmitt rottu að gæludýri.
Rottan virðist ekki par sátt með athyglina og bítur í hönd mannsins. Köttur sem líklega hugsaði sér gott til glóðarinnar við veiðar kippir sér lítið upp við athæfið.
@stony__malony Þetta er sma crazy #fyp#island#rat#harrypotter ♬ original sound – Steinar Bjarnason