The Guardian segir að frá 1982 til 1985 hafi gengi eitt myrt 28 manns, þar á meðal börn, þegar það framdi rán í stórmörkuðum. Fékk gengið viðurnefnið „Klikkuðu morðingjarnir frá Brabant“.
Ýmsar kenningar hafa verið settar fram um hverjir voru félagar í genginu enda hefur málið að vonum leitað mjög á belgísku þjóðina í um fjóra áratugi. Belgískir fjölmiðlar kalla málið „stærstu sakamálaráðgátu síðustu aldar“.
Ein af kenningunum, sem var tekin mjög alvarlega, er að gengið hafi ætlað sér að grafa undan ríkisvaldinu og að meðlimir þess hafi verið núverandi eða fyrrverandi lögreglumenn sem hneigðust til öfgahægri skoðana.
En lögreglunni tókst ekki að leysa málið þrátt fyrir fjölda rannsókna, fjölda fingrafara og DNA-rannsókna, að tugir líka voru grafin upp og rannsökuð og einnig handtók lögreglan fólk vegna rannsóknarinnar.
Á föstudaginn boðaði lögreglan fjölskyldur fórnarlambanna, það er þá ættingja sem eru enn á lífi, til fundar og kynnti ákvörðun sína um að hætta rannsókninni. Ann Fransen, ríkissaksóknari, sagði að fundi loknum við fréttamenn að því miður hafi ekki tekist að leysa málið en hún hefur stýrt rannsókn málsins síðust sex árin.
Kristiaan Vandenbussche, lögmaður, sagðist telja að hylmt hafi verið yfir eitt og annað í rannsókninni og sakaði spillta lögreglumenn um að „vinna skemmdarverk“ á rannsókninni til að vernda hina grunuðu.
Það þykir gera málið enn dularfyllra að ránsfengur gengisins var aðeins sem nemur um 26 milljónum íslenskra króna og þykir það benda til að peningar hafi ekki verið ástæðan fyrir að 28 voru drepnir.