Leikmenn Plymouth Argyle í næst efstu deild Englands mættu til starfa í vikunni eftir sumarfrí. Nýr þjálfari er mættur til leiks.
Wayne Rooney er mættur til starfa hjá Plymouth en þessi magnaði knattspyrnumaður tók við á dögunum.
Rooney var rekinn frá Birmingham á síðustu leiktíð en fær nú tækifæri hjá Plymouth.
Hann ræddi við leikmenn liðsins í gær. „Ég er sigurvegari;“ sagði Rooney við leikmenn liðsins og þrumaði yfir þeim.
Rooney sagði að allir leikmenn félagsins myndu fá tækifæri til að sanna ágæti sitt, hann myndi ekki horfa í fortíðina.
@plymouthargylefc The gaffer 👊 #fyp #foryou #pafc ♬ original sound – Plymouth Argyle FC