Tónlistarmaðurinn Auður gefur út nýtt lag á morgun og mun halda tónleika á Græna hattinum þann 12. júlí og svo í Gamla Bíó þann 13. júlí. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Lagið sem kemur út á morgun heitir Klórför. „Þetta er lítið lag um að vera skotinn í stelpu. Opnunarlínan er bein vísun í eitt af þekktustu söngtextum Halldórs Laxness. Um að gera að stela nokkrum línum af Laxness.“
Auður, eða Auðunn Lúthersson eins og hann heitir réttu nafni, er búsettur í Los Angeles þar sem hann vinnur við lagasmíðar og upptökur.
„Þetta eru einu Auður tónleikarnir í bili. Bara partý. Mér líður vel í Los Angeles og ætla mér að vera þar áfram. Ég er kominn með ágætis tengslanet og veit ég er rétt að byrja mitt ævintýri í stórborginni. Þar vinn ég við lagasmíðar og ég kann vel við mig í harkinu þar. Standardinn er hár og mikið af hæfileika sem fyllir mig innblæstri. Svo er bara svo gaman að vinna með fólki frá öllum heimshornum
„Það er búið að vera rosa gaman að koma heim til Íslands. Miðnætursólin er svo rómantísk og gott að hitta gamla vini og fjölskylduna.“
Miðasala á tónleikana fer fram í gegnum tix.is.