Skoski leikarinn Gerard Butler hefur fundið ástina á ný, í örmum fyrirsætunnar Penny Lane, sem meðal annars sat fyrir hjá Sports Illustrated í ár þar sem hún var kynnt sem nýliði ársins.
25 ára aldursmunur er á parinu, Butler er 54 ára og Lane 29 ára.
Lane hefur einnig reynt sig við leiklistina, en hún lék smáhlutverk í Justice League myndunum.
Butler hefur margoft komið til Íslands síðustu ár, bæði vegna vinnu og í fríi. Nú í sumar fara tökur á spennumyndinni Greenland: Migration, sem Butler fer með aðalhlutverkið í, fram að hluta hér á landi.