Manchester United tilkynnti fyrr í dag að Erik ten Hag hefði skrifað undir nýjan samning til ársins 2026.
Enskir blaðamenn segja það í raun ekki rétt að hafa kynnt þetta sem nýjan samning.
United sé frekar að virkja ákvæði í samningi Ten Hag þar sem í boði var að framlengja samning hans um eitt ár. Það sé félagið að gera.
Ten Hag verður á sömu launum og áður og er í raun ekki að skrifa undir nýjan samning, félagið er bara að nýta sér ákvæði sem var í samningi hans.
Samningur Ten Hag átti að renna út næsta sumar en með því að virkja ákvæðið er Ten Hag með tveggja ára samning.
Man United have triggered the existing +1 option in Ten Hag's contract rather than negotiating altogether fresh terms. Keeps his title and his transfer veto, which was part of the agreement when he moved from Ajax.
— Rob Dawson (@RobDawsonESPN) July 4, 2024