Chelsea hefur áhuga á því að kaupa James McAtee miðjumann Manchester City. Enskir miðlar segja frá þessu.
McAtee er 21 árs gamall en hann hefur verið á láni hjá Sheffield United síðustu tvö ár.
Chelsea keypti Cole Palmer frá City síðasta sumar og það heppnaðist vel, telur Chelsea að fleiri ungir gullmolar séu í liði City.
McAtee mun fara með City til Bandaríkjanna í æfingaferð í sumar en Chelsea og fleiri lið vilja kaupa hann.
McAtee á tvö ár eftir af samningi sínum við City en hann hefur spilað sjö leiki fyrir aðallið félagsins.