Real Madrid er að skoða það að kaupa sér miðvörð í sumar og hefur félagið áhuga á því að fá William Saliba varnarmann Arsenal.
Mirror fjallar um málið en Saliba hefur verið frábær í vörn Arsenal síðustu tvö ár.
Saliba hefur svo staðið eins og klettur í vörn Frakklands á Evrópumótinu.
Ólíklegt er að Arsenal sé tilbúið að selja Saliba sem er einn mikilvægasti leikmaður liðsins.
Hjá Real Madrid myndi Saliba hitta marga samlanda sína en Kylian Mbappe var að mæta til liðsins.