Stórstjarnan Jennifer Lopez brotnar ekki þó hún bogni aðeins meðan fjölmiðlar fylgjast með hverju skrefi hennar og bíða eftir að hjónaband hennar og leikarans Ben Affleck sé lokið.
Á meðal þekktra laga Lopez er lagið Ain’t Your Mama. Í vikunni sendi hún skýr skilaboð til allra sem lesa vilja þegar hún klæddist magabol með áletruninni JLO BE MY MAMA. Lopez var á ferð í New York í kynningarherferð fyrir snyrtivörulínu sína J. Lo Beauty þar sem hún stillti sér upp ekki með giftingarhringinn á fingri.
Hringurinn er hins vegar á fingri í nýjum myndum fyrir Coach sem deilt var um helgina, en ekki er vitað hvenær myndirnar voru teknar.
View this post on Instagram
Þrátt fyrir að vera hringlaus í myndbandinu, bar Lopez kútinn fyrir Coach markaðsmyndir sínar sem var deilt um helgina; hins vegar er óljóst hvenær hún stillti sér upp fyrir myndirnar.
Nýjustu fregnir herma að hjónabandinu sé í raun lokið og svo hafi verið í nokkra mánuði, eða síðan í mars. Villan í Beverly Hills, sem hjónin festu kaup á eftir að hafa leitað að draumahúsinu í tvö ár, sem og listaverk af heimilinu, er komin á sölu. Affleck löngu fluttur úr og býr í leiguhúsnæði nálægt barnsmóður sinni og þremur börnum þeirra.