Það kom upp vandræðalegt atvik á BBC á þriðjudag þegar sýnt var inn í búningsklefa hollenska karlalandsliðsins.
Holland og Rúmenía mættust þá í 16-liða úrslitum EM og vann fyrrnefnda liðið öruggan 3-0 sigur.
Fyrir leik var sýnt inn í klefa liðanna en þegar kveikt var á myndavélinni í búningsklefa Hollands mátti sjá leikmann þar beran að neðan að klæða sig í nærbuxur.
Það var skipt beint aftur úr klefanum en það fer ekkert framhjá netverjum og atvikið því farið eins og eldur í sinu.
Mynd af þessu er hér ofar.