Það var í mars sem tilkynnt var um hvarf Blake Deven, sem væri 17 ára í dag, en fjölskyldumeðlimir höfðu ekki séð hana árum saman. Í byrjun apríl tilkynnti lögreglan að hún teldi að London Deven, sem nú væri 28 ára, væri einnig týndur en hann hafði ekki sést síðan 2019 í heimabæ sínum Fayetteville.
Um miðjan apríl fundu lögreglumenn hluta af beinagrindum og voru beinin send til rannsóknar. Lögreglan skýrði svo frá því nýlega að rannsóknin hefði leitt í ljós að beinin væru úr Blake og London.
Avantae laug að lögreglunni um hvar Blake og London væru og sagði að Lonondon, sem var fatlaður, væri í athvarfi á vegum Búddista.
Lögreglan telur að Blake og London hafi látist fyrir 2019 og að Avantae hafi fengið aðstoð við að setja líkin í tunnu og brenna þau.
Hún hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald og getur ekki fengið lausn gegn greiðslu tryggingar að sögn Metro.