Sjá einnig: Sulta kom upp um framhjáhald Gerard Piqué
Það eru líka til ýmsar leiðir til að fela framhjáhald. Sumir ganga svo langt að hala niður sérstöku leyniforriti í snjallsímann sem lítur sakleysislega út.
Ein kona, sem kemur fram nafnlaus, hefur nú komið upp um eina slíka aðferð.Konan opnaði sig um málið á Reddit og sagðist skammast sín vegna málsins.
Þetta byrjaði allt fyrir nokkrum vikum þegar hún sá forrit í síma eiginmannsins sem vakti athygli hennar. Ekki af því að það væri eitthvað sérstakt við það heldur fyrir hvað það var notað.
Kærasti hennar var að fara í heimabankann sinn en smellti fyrst á reiknivélina, en slíkt smáforrit er í öllum iPhone símum. Hún sá að þar virtist vera einhvers konar mappa en hún ákvað að segja ekkert meira um þetta, bara lagði þetta á minnið.
Næst þegar hún fékk tækifæri til að fara í gegnum símann hans greip hún það. En til að komast inn í reiknivélamöppuna þá þurfti lykilorð.
„Ég var ekki lengi að giska á rétt lykilorð (árið sem sonur okkar fæddist). Ég komst að því að hann hefur verið að halda framhjá mér með konu, sem ég held að sé samstarfskona hans miðað við samtöl þeirra. Þau hafa verið að sofa saman í allavega sjö mánuði,“ skrifaði konan.
„Það voru skjáskot af samtölum þeirra og nektarmyndum af henni í þessari möppu, og það versta var að það voru myndir og myndbönd af þeim saman. Ekki að borða saman eða eitthvað slíkt, heldur að stunda kynlíf.
Mig langaði að kasta upp en ég neyddi mig sjálfa til að fara í gegnum myndirnar, því ég vissi að ég þyrfti að koma mér út úr þessu sambandi og þyrfti þess vegna allar þær upplýsingar sem ég gæti komist yfir.
Það var eitt myndband sem var sérstaklega erfitt að horfa á. Þau voru í fjölskyldubílnum okkar, hún var ofan á honum og sagðist vera kalt og maðurinn minn vafði teppi sonar okkar utan um hana.“
Konan setti símann aftur á sinn stað og fór inn í herbergi sonar þeirra og svaf þar þá nótt. Næsta morgun lét hún eins og ekkert hafi í skorist en hafði síðan samband við skilnaðarlögfræðing og hafði alla pappíra tilbúna á eldhúsborðinu þegar hann kom heim úr vinnu. Hún ákvað að bíða ekki eftir honum heima heldur fór til móður sinnar með son þeirra og stóra ferðatösku.
„Ég hef eiginlega engan til að tala við. Ég skammast mín svo ótrúlega mikið og mér finnst viðbjóðslegt að hugsa til þess að hann hafi nr. 1: Vistað samtöl og myndir/myndbönd af kynlífsathöfnum þeirra og nr. 2: Notað teppi sonar okkar. Ég varð bara að deila þessu með einhverjum.“
Netverjar stöppuðu í hana stálinu og sögðu hana hafa tekið rétta ákvörðun að fara frá honum.