Starfsfólk Manchester United hefur verið látið vita af því að 25 prósent af starfsfólki félagsins á skrifstofu verði sagt upp.
United er með rúmlega 1100 starfsmenn utan vallar og er ekkert félag á Englandi með fleiri starfsmenn.
Liverpool er með rúmlega þúsund en Manchester City er með rúmlega 500, Arsenal og Chelsea eru með á bilinu 700 til 800 starfsmenn.
Ratcliffe hefur farið í gegnum rekstur félagsins síðustu mánuði og ætlar í uppsagnir, telur hann félagið vera með alltof marga starfsmenn.
Uppsagnir verða þvert á deildir félagsins og er búist við að uppsagnarbréfin verði afhent fólki í júlí.