Ederson markvörður Manchester City gæti yfirgefið herbúðir félagsins á næstu dögum en hann er með svakalegt tilboð frá Al-Nassr.
Al-Nassr hefur boðið Ederon að þéna rúmar 50 milljónir punda fyrir tveggja ára samning.
Ef Ederson er klár í slaginn ætlar Al-Nassr að ræða við City en talið er að enska félagið sé tilbúið að selja hann fyrir rétt verð.
Talið er að City sé tilbúið að skoða það að leyfa Ederson að fara fyrir 40 milljónir punda.
Al-Nassr vill losna við David Ospina úr markinu en Ederson er er þrítugur og hefur verið einn besti markvörður í heimi síðustu ár.