Málið snýst um að það komst upp að dóttir hennar hafði svindlað á prófi. Til að refsa henni gaf móðir hennar hund dótturinnar á brott en hann var í miklum metum hjá stúlkunni.
Einhver efi virðist hafa læðst að móðurinn því hún leitaði álits notenda Reddit og spurði hvort þetta væri of þung refsing.
Í færslu sinni sagði hún að dóttirin hafi um langa hríð ekki sinnt náminu vel. Hún hafi sjaldan gert heimaverkefni sín, ekki fylgst með í tímum og undirbúið sig undir próf á síðustu stundu. Þrátt fyrir þetta fékk hún ásættanlegar einkunnir í öllum fögum nema sögu.
En allt fór í háaloft þegar dóttirin áttin að fara í mikilvægt próf. Hún fullvissaði móður sína um að hún myndi ná því og sýndi henni síðar sönnun þess að hún hefði staðist prófið.
Nokkru síðar var móðir hennar að þrífa herbergið hennar og fann þá kassa með pappírum og prófúrlausnum frá árinu áður. Meðal þeirra var prófúrlausn sem var næstum því alveg eins og prófúrlausn dótturinnar en var frá vinkonu hennar. Móðirin taldi augljóst að dóttirin hefði svindlað á prófinu.
Hún var staðráðin í að refsa dóttur sinni harkalega fyrir svindlið og ákvað því að gefa nágrannanum hundinn hennar.
Stúlkan hefur verið óhuggandi síðan og faðir hennar segir móðurina vera bjána. En móðirin stendur fast á því að svindlið eigi að hafa afleiðingar.
Í færslunni spyr hún hvort hún sé bjáni af því að hún gaf hundinn og segir að henni hafi fundist nauðsynlegt að gera það til að sýna hversu alvarlegt prófsvindl sé.
Skoðanir fólks um þetta eru skiptar. Sumir telja að móðirin hafi gengið of langt með þessu og þetta sé þess utan ekki sanngjarnt gagnvart hundinum. Aðrir styðja hana og segja þetta rétta ákvörðun.