Hollendingar flugu áfram í undanúrslit með nokkuð sannfærandi 3-0 sigri á Rúmeníu í Þýskalandi, leiknum lauk rétt í þessu.
Það var Liverpool maðurinn, Cody Gakpo sem skoraði fyrsta mark leiksins eftir tuttugu mínútna leik.
Hollendingar fengu fullt af færum til að klára leikinn en voru klaufar upp við markið.
Það var svo Donyl Malen sem kom liðinu í 2-0 þegar lítið var eftir af leiknum og hann bætti við þriðja marki liðsins í uppbótartíma. Holland komið áfram.
Holland mætir Austurríki eða Tyrklandi í átta liða úrslitum en það kemur í ljós í kvöld hvort þeirra liða fer áfram.