Mats Hummels gæti gengið í raðir Þýskalandsmeistara Bayer Leverkusen í sumar ef marka má þýska blaðið Kicker.
Hinn 35 ára gamli Hummels er án félags eftir að hafa yfirgefið Dortmund í sumar og skoðar hann nú kosti sína.
Leverkusen þarf hugsanlega að fara í miðvarðaleit þar sem Jonathan Tah er eftirsóttur af Bayern Munchen. Tah er metinn á um 40 milljónir evra en Vincent Kompany og félagar hjá Bayern vilja ólmir fá hann.
Takist þeim það er ekki ósennilegt að Leverkusen horfi til reynsluboltans Hummels.
Leverkusen valtaði yfir þýsku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð og vann einnig bikarinn þar í landi.