Þessi orð úkraínsku hermannanna til áhafna rússnesku herskipanna tveggja, sem var siglt upp að eyjunni, munu seint gleymast. Annað herskipanna var „Moskva“, flaggskip Svartahafsflotans en eins og frægt er orðið tókst Úkraínumönnum síðar að sökkva skipinu.
Eins og gefur að skilja tókst 13 úkraínskum hermönnum ekki að verja eyjuna gegn miklu fjölmennara rússnesku innrásarliði. Í fyrstu var talið að Úkraínumennirnir hefðu fallið en síðar kom í ljós að þeir höfðu verið teknir höndum.
Þann 30. júní 2022 náðu Úkraínumenn eyjunni aftur á sitt vald og í tilefni af tveggja ára afmælinu birti úkraínska leyniþjónustan SBU myndband af frelsun eyjunnar.
Í myndbandinu sést þegar Úkraínumenn varpa sprengjum á eyjuna og upptökur úr búkmyndavélum sýna hermenn hoppa út úr þyrlum og hertaka eyjuna eftir að hafa hlaupið um og háð skotbardaga við rússneska hermenn.