Manuel Ugarte miðjumaður PSG er á óskalista Manchester United í sumar og hafa viðræður milli félaganna átt sér stað.
Ugarte er frá Úrúgvæ og hefur hann einnig átt samtal við United.
Nú hefur svo umboðsmaður Ugarte tjáð sig og daðrar við Liverpool í því. „Liverpool? Það er mikið talað en það er ekki bara eitt félag, það eru fleiri. Það eru margir kostir á borðinu,“ sagði Jorge Chijane umboðsmaður Ugarte.
„Það er nánast öruggt að hann fer frá PSG, það er á hreinu. Þetta mun koma í ljós.“
Ugarte hefur verið hjá PSG í eitt ár en áður var hann hjá Sporting Lisbon og virðist eftirsóttur biti.