„Dýrasta kjötsúpa sem ég hef séð,“ skrifaði hann með færslunni í gær.
Færslan vakti gríðarlega athygli og virtust margir vera sammála um að ferðaþjónustan væri á undanhaldi.
„Ferðaþjónustan grefur sína eigin gröf, þurfa enga hjálp,“ segir einn og eru tæplega 50 manns sammála þeirri yfirlýsingu þegar fréttin er skrifuð.
Sumir meðlimur voru fyrir vonbrigðum með að matseðillinn væri ekki á íslensku.
„Þessi staður sér ekki sóma sinn í að hafa matseðil á íslensku,“ sagði einn.
Ferðaþjónustan kom aftur til tals í hópnum í dag. Þar birti meðlimur mynd af samloku á veitingastað í Leifsstöð.
„Þar sem ferðaþjónustan grætur yfir fækkun ferðamanna, þá má nú ekki gleyma að allir fara aftur heim og ræða alltaf eitt frá sínum ferðalögum hérna. Hvað allt er dýrt á Íslandi. Íslenska græðgin hefur líka gert okkur heimalingum erfitt fyrir með verðlag.
Þessi litla samloka á Keflavíkurvelli. Á stað sem heitir Bakað. Takið eftir að þetta verð er í duty free pakkanum.
Niðri kostar hún kr. 2499.
Þetta er hrein geðveiki.“
Aðrir meðlimir hópsins tóku í sama streng og í færslunni um kjötsúpuna.
„Ferðaþjónustan sér um að jarða sig sjálf,“ sagði einn.
„Þetta er komið út í hreina sturlun þetta verðlag hér á landi,“ sagði annar.
Í mars var greint frá því að allir gestir Perlunnar þurfi nú að kaupa aðgangsmiða að byggingunni. Á það við um alla sem ætla inn í bygginguna hvort sem þeir ætla sér aðeins á kaffihúsið, veitingastaðinn eða útsýnispallinn.
Aðgangsmiði fyrir fullorðna kostar 5.390 krónur og fyrir 6-17 ára kostar miðinn 3.390 krónur, frítt er fyrir yngri en sex ára, en væntanlega þá í fylgd með fullorðnum. Innifalið í verðinu er aðgangur að byggingunni, útsýnispallinum, norðurljósasýningunni Áróra og sýningum Wonders of Iceland. Það kostar því 9.890 krónur fyrir ferðamenn að fara í Perluna og fá eina skál af kjötsúpu. Íslendingar geta sótt um sérstakt vildarvinakort sem er frítt og veitir frían aðgang að byggingunni.
Þetta olli talsverðu fjaðrafoki á sínum tíma. Fólk velti fyrir sér hvort megi mismuna svona milli heimamanna og ferðamanna: „Eitthvað skrýtið við þetta, ef útlendingur ætlar bara á kaffihúsið, veitingastaðinn eða á útsýnispallinn þá þarf hann að borga en ef íslendingur ætlar að gera það sama þá getur hann sótt um ókeypis vildarvinakort og þarf ekki að borga sig inn. Svo fær Íslendingurinn líka þá afslátt af þjónustu og veitingum í Perlunni. Kallast þetta ekki mismunun eða bara vilji til að græða á útlendingum?“
Sjá einnig: Rukkun aðgangs í Perluna hneykslar marga – „Má þetta bara?“