Manchester United hefur opinberað aðalbúninga sína fyrir næstu leiktíð.
Búningurinn er framleiddur af Adidas og fremur hefðbundin. Það eru þó alltaf einhverjar breytingar og eru rendurnar á treyjunni í ár til að mynda hvítar en ekki svartar eins og í fyrra.
Þá má sjá að nýr styrktaraðili er framan á treyjunum. Snapdragon tekur við af TeamViewer.
United vonast til að komandi tímabil verði betra en það síðasta. Liðið hafnaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar en bjargaði þó andlitinu með því að vinna enska bikarinn.
Hér að neðan má sjá treyjurnar.
Ready for what comes next.
Our 2024/25 home kit — built for the new era ❤️#MUFC || @adidasFootball
— Manchester United (@ManUtd) July 1, 2024