Baldvin Már Borgarson, sparkspekingur og þjálfari FC Árbær, setur spurningamerki við fréttatilkynningu KR þar sem sagt var frá ráðningu á Vigfúsi Arnari Jósepssyni í stöðu aðstoðarþjálfara karlaliðsins.
KR tilkynnti í gær að Vigfús hafi verið ráðinn aðstoðarmaður Pálma Rafns Pálmarsonar út tímabilið, en Pálmi tók við af Gregg Ryder eftir dapurt gengi á dögunum.
Vigfús hætti sem þjálfari Leiknis fyrr á tímabilinu en það er óhætt að segja að Vesturbæingar hafi ekki kynnt hann til leiks með neinni flugeldasýningu.
„Er ég einn um að finnast sjoppulegt að tilkynning KR á ráðningu Fúsa sé sett fram með screenshotti úr viðtali á .net? Maður er kannski smámunasamur en mér finnst alveg mega taka eina mynd af manninum í KR peysu í Frostaskjóli, eða nota gamla mynd síðan hann spilaði fyrir KR,“ skrifar Baldvin á X, en umrætt skjáskot er frá því Vigfús var í viðtali við Fótbolta.net sem þjálfari Leiknis.
Vigfús lék með KR snemma á sínum leikmannaferli en var lengst af hjá Leikni.
Er ég einn um að finnast sjoppulegt að tilkynning KR á ráðningu Fúsa sé sett fram með screenshotti úr viðtali á .net? Maður er kannski smámunasamur en mér finnst alveg mega taka eina mynd af manninum í KR peysu í Frostaskjóli, eða nota gamla mynd síðan hann spilaði fyrir KR. pic.twitter.com/VQ7oCln2GW
— Baldvin Borgars (@BaldvinBorgars) June 30, 2024