BBC segir að sjómennirnir hafi verið í veiðiferð þegar þeir fundu flöskurnar um 320 sjómílur frá Tangalla á suðurströnd Sri Lanka.
Talsmaður sjóhersins sagði fréttamönnum að sjómennirnir hafi talið að áfengi væri í flöskunum og hafi því drukkið úr þeim.
Þegar sjóherinn kom að bátnum voru fjórir sjómenn látnir og tveir til viðbótar í lífshættu.
Sjómennirnir höfðu gefið áhöfnum annarra báta á svæðinu flöskur og hófst sjóherinn strax handa við að reyna að hafa uppi á þessum bátum til að geta varað áhafnirnar við.
Enn er verið að rannsaka innihald flasknanna.