Sky News skýrir frá þessu og segir að þetta komi fram í dómskjölum sem voru lögð fram fyrir dómi í Los Angeles.
Í skjölunum kemur fram að sum lána hans hafi borið mjög háa vexti og sum voru í vanskilum. Jackson hafði verið að undirbúa 50 tónleika í O2 Arena í Lundúnum skömmu áður en hann lést. Fyrstu tónleikarnir áttu að vera 18 dögum síðar.
Tónleikahaldarinn, AEG, krefst þess nú að fá 40 milljónir dollara frá dánarbúinu vegna útlagðs kostnaðar við undirbúning tónleikanna.
Jackson átti einnig málshöfðanir yfir höfði sér í mörgum ríkjum Bandaríkjanna og erlendis þegar hann lést. 65 lánardrottnar höfðu þá þegar höfðað mál á hendur honum.