Fimm einstaklingar eru vistaðir í fangageymslu lögreglu eftir næturvakt lögreglunnar.
Ekið var á gangandi vegfaranda í hverfi 101 og ekið á brott. Tókst að hafa upp á ökumanni, og var hann handtekinn og vistaður á lögreglustöð uns skýrsla verður tekin af honum.
Tilkynnt um yfirstandandi innbrot, annað í hverfi 101 og hitt í hverfi 105. Tilkynningar komu með stuttu millibili og því í nógu að snúast hjá laganna vörðum.
Tilkynnt um hjólreiðaslys, þar sem tveir skella saman, í hverfi 201. Ekki frekar upplýsingar fyrirliggjandi þegar þetta er ritað.
Tilkynnt var um konu í annarlegu ástandi í hverfi 105. Hún var handtekin og vistuð á lögreglustöð uns ástand skánar.
Tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í hverfi 200 og einnig i hverfi 270.