Guðni Þór Sigurjónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður vaxtar og þróunar hjá Ölgerðinni, en þetta er ný deild hjá fyrirtækinu sem ætlað er að efla enn frekar viðskipta- og vöruþróun félagsins. Guðni Þór hefur starfað hjá Ölgerðinni um langt árabil og veitti síðast forstöðu vöruþróunar- og gæðamálum fyrirtækisins, eins og segir í tilkynningu.
Ölgerðin hefur verið leiðandi í vöruþróun á matvæla- og drykkjarvörumarkaði og ætlar með þessu að setja enn meiri athygli á þennan þátt á kvikum og hröðum markaði. Stefna félagsins hefur verið skýr að sinna vöruþróun með öflugum hætti eins og fjölmargar nýjungar fyrirtækisins á síðustu árum bera vott um og má þar nefna COLLAB, Mist, Orku og Heiðu, fyrstu íslensku jurtamjólkina. Ölgerðin tekur nú enn eitt skrefið á þeirri vegferð með þessari ráðningu.
Guðni Þór, sem er með MBA frá HR og menntaður matvælafræðingur frá HÍ, hefur verið í fararbroddi í yfir 20 ár í matvæla- og drykkjarvörugeiranum, bæði á Íslandi og erlendis.
„Ráðning Guðna í þetta nýja starf forstöðumanns vaxtar og þróunar sýnir svart á hvítu áherslu okkar á að gera nýsköpun og tengdum þáttum enn hærra undir höfði. Hann hefur í starfi sínu þróað margar okkar helstu vörur sem slegið hafa í gegn og það er okkur sönn ánægja að fá hann til að leiða þessa nýju deild,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.
„Ég er afar spenntur fyrir nýja starfinu og þetta sýnir enn einu sinni hversu framsýnt og framsækið fyrirtæki Ölgerðarinnar er að setja upp deild sem þessa. Sem forstöðumaður vaxtar og þróunar ber ég ábyrgð á vöruþróun, tækjaþróun og greiningu vaxta- og markaðstækifæra og ég hlakka til að starfa að þessu með því öfluga starfsfólki sem starfar hjá Ölgerðinni,” segir Guðni Þór.