Maður var þann 26. júní sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir stórfellda líkamsárás og brot í nánu sambandi gagnvart unnustu sinni á tímabilinu október 2023 til mars 2024.
Alls voru tilgreindir fjórir ákæruliðir sem þetta varða. Í fyrsta lagi var maðurinn sakaður um að hafa í október 2023 veist að konunni með ofbeldi og áreitt hana fyrir utan veitingastað, með því að grípa í hana, skella höfði hennar í vegg, slá hana ítrekað í höfuðið og saka hana um að hafa verið honum ótrú. Við atlöguna hlaut konan yfirborðskennda áverka á höfði.
Í öðru lagi er maðurinn sakaður um að hafa brotið gegn konunni í nóvember í fyrra, veist að henni með ofbeldi og svívirt hana og smánað þar sem þau voru stödd á heimili móður ákærða. Sló hann hana hnefahöggi í maga, hellti vínblöndu yfir hana og kallaði hana ljótum nöfnum, t.d. að hún væri feit og ljót. Einnig sakaði hann hana um lauslæti og framhjáhald.
Í þriðja lagi er maðurinn sakaður um brot þann 21. desember 2023. Veittist hann þá að konunni með ofbeldi fyrir utan Bónus í Holtagörðum, sló hana með hundaól í andlitið með þeim afleiðingum að hún hlaut opið sár á vinstri augabrún.
Í fjórða lagi veittist maðurinn að konunni með ofbeldi laugardaginn 19. mars 2024, hótaði henni lífláti og svívirti hana og smánaði þar sem þau voru stödd á heimili föður ákærða. Kallaði hann hana ljótum nöfnum, sagði hana ljóta og feita og að hvorki hún né börnin hennar verðskulduðu að fá að lifa. Setti hann hníf að hálsi hennar og hótaði að stinga hana, sló hana í kynfærin, kastaði henni í gólfið og tók hana þar hálstaki og herti að þannig að hún gat ekki andað, reif í hár hennar og sló hana ítrekað í hnakkann.
Maðurinn var einnig ákærður fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Hann játaði öll brot sín skýlaust fyrir dómi.
Var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi og til að greiða rúmlega 2,2 milljónir króna í sakarkostnað. Dóminn má lesa hér.